top of page

Þar sem listin verður til

Laugardaginn 3. og sunnudaginn 4. október kl. 13–17

Listarölt er helgi opinna vinnustofa á Akureyri og í nágrenni. Listamenn opnar dyr sínar og bjóða gestum að kynnast verkunum og sköpunarferlinu.

Skipuleggðu þitt eigið listarölt,  skoðaðu eða keyptu fjölbreytt verk beint af listamanninum.

Veldu þína leið, taktu með þér góða félaga og komdu á Listarölt.

martin-de-arriba-Ro4u_Y86Kx4-unsplash.jpg

Hvar og hvenær?

1790350685897-4cabed2d-a470-460e-a506-45588fdeda48_2_edited.jpg

Listarölt verður haldið á Akureyri og í nágrenni dagana 3. og 4. október kl. 13-17 báða daga.

14 vinnustofur taka þátt í ár og mismunandi eftir vinnustofum hvort þar sé einn eða fleiri listamenn.

Vinnustofurnar bjóða gesti og gangandi velkomna í heimsókn að sjá, skoða og kaupa listaverk. 

​

Hver vinnustofa verður með eitt verk á gjafverði eða 10.000 kr. 

Akureyri og nágrenni

1790350685897-4cabed2d-a470-460e-a506-45588fdeda48_2.png

Hver getur tekið þátt? og hvernig virkar þetta?

Fáðu vegabréf

Allir eru velkomnir að taka þátt.

Byrjaðu á að fara á eina vinnustofu sem er á listanum hér neðar og fáðu vegabréf!

Fáðu stimpil

Á hverri vinnustofu eru listamenn með stimpil eða áritun fyrir vegabréfið. Þannig að ekki gleyma að láta stimpla í vegabréfið ykkar! 

​

Reyndu að safna eins mörgum stimplum og þú getur! 

1790350685897-4cabed2d-a470-460e-a506-45588fdeda48_1_edited.jpg

Skilaðu afrifu af vegabréfinu

​Á sunnudeginum 4. október má skila inn vegabréfunum og nokkrir heppnir af þeim sem skila inn hreppa happdrættisvinning.  

​

Það má skila inn á þeirri vinnustofu sem þið heimsækið síðast. Því fleiri stimpla sem þú ert með á vegabréfinu, þeim mun meiri líkur að fá vinning. 

Happdrættisvinningur

Í vikunni 4.-10. október verður dregið úr vegabréfum sem skilað var inn á sunnudeginum.

 

Vinningshafar verða tilkynntir á facebook-eventinum og fá tölvupóst eða símtal.

Vinnustofur og menningarhús
í Listarölti 2026

Opið 4. okt kl. 13–17

Laugardagur - 12 tóna korter
Sunnudagur - leiðsögn með listamanni

Flóra menningarhús   

bottom of page